Kamelmjólkurís fyrir þá sem þora

Hinn vinsæli ísdagur, sem er hluti af bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum í Hveragerði um næstu helgi, fer fram á milli klukkan 13:00 og 15:00 á laugardaginn. Þá rætast draumar allra ísþyrstra Íslendinga.

Víða um blómabæinn og á planinu við Kjörís verður hægt að smakka ótrúlegustu tegundir af ís,  svo sem Grasagudduís, poppís, gráðostaís, ís úr brenni sem var þekkt sælgæti hér fyrir nokkrum árum. Og það óvenjulegasta í ár er Kamelmjólkurís. 

Aðdáandi Kjörís smakkaði kamelmjólk í Dubai og benti Guðrúnu Hafsteinsdóttur og hennar fólki í Kjörís á þessa sérstöku vöru. Kamelmjólk hentar t.d. vel fólki sem er með laktósaofnæmi: \"Kamelmjólkin er viðurkennd af öllum fæðuprófum og Kamelmjólkurís stenst ströngustu gæðakröfur. Við fengum Kamelmjólkina senda frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum\" sagði Guðrún Hafsteinsdóttir og á von á þúsundum manna að gæða sér á ókeypis ís á ísdeginum eins og undanfarin ár: \"Þetta er níunda árið sem ísdagurinn fer fram\" sagði Guðrún og bætir við að einnig verður hægt að smakka ís úr hinum lyktsterka Durian ávexti frá Asíu. Ókeypis og óvenjulegur ís verður í boði á planinu, í Hveragarðinum og víðar um Hveragerði. 

Hægt er að sjá þátt um blómabæinn Hveragerði og um Blómstrandi daga í Lífsins list hjá Sirrý hér á hringbraut.is