Kalt yfir landinu fram í næstu viku

Norðanáttir verða viðvarandi fram í næstu helgi með talsverðum kulda og má búast við því að kvikasilfrið sigi niður fyrir 10 gráðurnar í hitamælunum inn til landsins á laugardags og sunnudag.

Annars er þetta vetrarveður að mestu meinlaust og stillt, bjart verður syðra, altént á laugardag og ef til vill á sunnudag en búast má við einhverjum éljum sem látra á sér kræla við norðurströndina.

Þennan fimmtudaginn verður suðlæg eða breytileg átt, allt frá vægum vindi til 10 m/s og él um mikinn hluta landsins, en bjartviðri austanlands. Frost verður 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðaustantil. 

Hann gengur svo í norðaustan 10 til 18 á morgun með éljum eða snjókomu nokkuð víða. Þó mun hægari vindur og úrkomulítið á norðaustanverðu landinu, en vaxandi norðanátt með ofankomu þar undir kvöld.