Kalt sumar í uppsiglingu?

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir ýmislegt benda til þess að kuldafrávik í Atlantshafi muni hafa áhrif á veðurfar á norðurhveli nú í sumar og þar af leiðandi á Íslandi.  Í viðtali við mbl.is segir hann sjóinn sunnan Íslands vera talsvert kaldari en áður og að ýmislegt bendi til þess að ekki sé um skammtímasveiflur að ræða. Það sé alþekkt frá fyrri tíð að svona frá­vik frá hita­stigi sjáv­ar hafa áhrif á tíðarfarið, og leiði til kaldara sumars.


Einar segir sjáv­ar­hitann stjórn­a veðurfar­inu hjá okk­ur. Ef breyt­ing­ar verða á hita sjáv­ar­svæðanna við Ísland hafi það áhrif á þrýstifarið og varma­skipti á milli loft­hjúps og sjáv­ar og þetta tvennt sé það sem mót­i veðrið hjá okk­ur frá degi til dags, sér­stak­lega á eyju úti í Atlants­hafi sem um­lukin er sjó.