Hnútusendingarnar ganga á milli Gylfa Arnbjörnssonar, forseta Alþýðusambands Íslands og Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, en sá fyrrnefndi segir inngrip þess síðarnefnda í formannskosningu í Eflingu vera fordæmalausa.
Tilefni alls þessa aggs er stuðningsyfirlýsing Ragnars Þórs við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, leikskólastarfsmanns sem er formannsefni á lista fólks sem ætlar að bjóða fram gegn lista stjórnar og uppstillingarnefndar í Eflingu, en fulltrúar framboðs hennar héldu baráttufund í gær í Rúgbrauðsgerðinni. Sólveig Anna hefur lýst óánægju með verkalýðsforystuna - og undir þá gagnrýni hefur Ragnar Þór tekið; segir forseta ASÍ vera úr tengslum við almenning og ekki vinna að hagsmunum hans á vettvangi kjarabaráttunnar.
Við það kannast Gylfi ekki og bendir á að hann hafi fimm sinnum náð kjöri sem forseti ASÍ á undanliðnum árum - og meðal annars haft þar betur gegn Ragnari Þór í tvígang. Auðvitað megi gagnrýna forystu ASÍ - og vitaskuld megi Ragnar haga orðum sínum eins og honum hentar, en það sem verkalýðsforystuna vati síst nú um stundir sé óeining og klofningur.
Ragnar Þór hefur viðrað þá hugmynd að VR, sem er fjölmennasta stéttarfélagið innan ASÍ, gangi úr sambandinu, en Gylfi kveðst efast um að nokkur hljómgrunnur sé til þess innan stjórnar VR.