Landsmenn mega búast við kuldatíð næstu daga og því eins gott að hafa bæði rúðusköfuna við hendina og vera klár í hálkuna á vegum bæði innanbæjar og utan, en mjög hált var á heiðum í morgum um mest allt land.
Kuldakastinu fylgir nokkuð milt veður, en í dag má búast við hægum vindi og björtum himni víðast hvar, en dálitlum éljum um norðvestanvert landið og síðar einnig við alla norðurströndina. Búast má við slyddu sunnanlands í dag.
Frost verður yfirleitt 0 til 5 stig, mildara við sjóninn en harðara inn til landsins þar sem frostið fer væntanlega undir 10 stogin næstu daga.
Um næstu helgi er gert ráð fyrir norðlægum áttum og éljum fyrir norðan, en þá verður bjart með köflum syðra. Og kalt verður í veðri.