Kalt í kortum alla næstu viku

Ekkert lát er á þeim kaldrana sem veerið hefur yfir landinu síðustu daga og spá veðurfræðingar því að hiti komist vart eða ekki yfir frostmark allt fram á næstu helgi. Víða verður mjg kalt á allra næstu dögum og gæti frostið farið niður í 12 gráður, sérstaklega í innsveitum norðanlands.


Að vonuim er ekkert sérstaklega vorlegt á byggðum bólum á borð við Mývatnssveit þar sem bændur komast lítt til vorverka sakir snævar, njóðs og svala. Frostið á þeim slóðum hefur verið um og yfir 10 gráðum um helgina og verður svo fram í vikuna.


Snjókomu er spáð næstu daga um norðan- og norðaustanvert landið og raunar einhverri ofankomu alla vikuna sem teygir sig suður fyrir Vatnajökul þegar líða tekur á þessa síðustu viku aprílmánaðar.