Ekkert lát er á norðanbálinu sem keyrt hefur höfuð landsmanna ofan í axlir síðustu daga og vikur og má búast við því að kuldatíðin vari að minnsta kosti fram í miðja næstu viku. Við frostmark var í Reykjavík í morgun. Enn snjóar nyrðra og eystra.
Nú þegar rétt vika er liðin af maímánuði er fráleitt mjög sumarlegt yfir að líta á landinu bláa, enda gróður kominn skammt á veg ef hann hefur þá eitthvað létt á vetrardvala sínum. Miklar fannir eru í fjöllum um allt land og snjóþekja á láglendi fyrir norðan og austan. Segja þeir sem til þekkja vart muna aðra eins fyrirferð af kyngju í fjallagiljum á þessum árstíma og má ljóst vera að snjóa leysir ekki að fullu í lágum fellum og hæðardrögum fyrr en vel er komið fram í júní.
En veðurminni fólks er svikult. Kuldinn síðustu vikur er ekki meiri en svo að vera í meðaltali síðustu ára eins og fram kemur í yfirliti Veðurstofunnar. Hún segir á vef sínum að mjög kalt hafi vissulega verið fyrstu tvo daga nýliðins mánaðar og sömuleiðis í síðustu viku hans. Tíð hafi verið lengst af hagstæð um landið norðaustan- og austanvert, en hafi þótt síðri í öðrum landshlutum. "Hiti var lítillega undir meðallagi áranna 1961 til 1990 um landið suðvestanvert en annars yfir því – mest á Austurlandi þar sem hiti var einnig lítillega yfir meðallagi síðustu tíu ára. Mun kaldara var í apríl 2013 heldur en nú. Úrkomusamt var norðan til á Vestfjörðum og sums staðar norðanlands – en úrkoma var í slöku meðallagi um landið suðvestan- og vestanvert," segir í þessari samantekt Veðurstofunnar.