Kalt áfram, hvasst og éljagangur

Ekkert lát er á norðanbálinu sem hefur haldið landinu í kuldakrumlu sinni um langa hríð. Spár gera ráð fyrir frosti og kaldrana fram á næstu helgi - og raunar er ekkert annað en kuldi í kortunum fram í byrjun maí. Vindur snýr sér þó smám saman í austanátt, en það breytir engu um það sem af himnum kemur; éljagangur, skafrenningur og jafnvel keyfandi bylur og þétt ofankoma verður ríkjandi um norðanvestanvert landið og allt austur á firði þessa vikuna.


Þessi ósköp hafa vissulega sín áhrif samgöngur á landi - og jafnvel raunar á lofti og legi. Þar ráða vindrokurnar miklu og skapa hættu á vegum. Búast má við snörpum vindhviðum, 35-45 m/s suðaustanlands í allan dag og fylgir staðbundið sandfok á þeim slóðum. Þá bætir líka heldur í vind suðvestanlands með hviðum upp undir 35 m/s á Kjalarnesi. 


Vegir eru greiðfærir að heita má um allt sunnanvert landið. Hálkublettir og éljagangur er á Hellisheiði og mjög hvast er á Kjalarnesi og á Mosfellsheiði. Á Vesturlandi eru flestir vegir greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti. Ófært er á Bröttubrekku og hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði og í Svínadal. Á Vestfjörðum er hálka og snjóþekja. Ófært er í Árneshrepp sem og á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði. Það er víða hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur á Norðurlandi. Þæfingsfærð og skafrenningur er á milli Þórshafnar og Bakkafjarðar og á Hólasandi og hálka og stórhríð er á Sandvíkurheiði. Ófært er á Hófaskarði. Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja og snjókoma á flestum leiðum og sumstaðar stórhríð. Lokað er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum sem og á Fjarðarheiði og ófært er á Vatnsskarði eystra en þæfingur á Oddsskarði. Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar. Mikið hvassviðri er í Hamarsfirði og sandfok á Suðausturlandi en vegir greiðfærir.