Í þættinum Matjurtir sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld heimsótti Auður Rafnsdóttir Önnu Saari og fékk að gæða sér á ýmsu góðgæti sem Anna ræktar í garðinum sínum í miðborg Reykjavíkur. Anna gaf Auði uppskrift af kálsnakki, sem auðvelt er að búa til og allir falla fyrir, hvort sem er börn eða fullorðnir. Hér er uppskriftin með leiðbeiningum:
- Rífa grænkál af stönglinum og tæta það niður í munnstóra bita.
- Setja kálið í skál.
- Hella yfir kálið smá olífuolíu og grófu salti.
- Hræra lauslega þannig að kálbitarnir séu vel þaktir olíu og salti.
- Setja kálbitana á bökunarpappír í ofnskúffu og passa vel að bitarnir liggi ekki saman. Baka við 150° hita í 10 mínútur.
Lykilatriðið er að fylgjast vel með kálinu í ofninum svo það brenni ekki - en það getur gerst á augnabliki.
Þátturinn Matjurtir er á dagskrá Hringbrautar öll mánudagskvöld klukkan 20.15 og endursýndur á miðvikudagskvöldum klukkan 20.30. Þátturinn er unninn í samstarfi við upplýsingaveituna Spyr.is, þar sem Auður Rafnsdóttir svarar fyrirspurnum lesenda og skrifar pistla um kryddjurtir.