Karl Örvarsson, bróðir Atla Örvarssonar, er meðal þeirra tónlistarmanna sem syngja í nýrri arabískri teiknimynd, Bilal, sem Atli semur tónlist við og Hringbraut hefur fjallað um hér. Myndin er frumsýnd um þessar mundir í Katar en fer í almenna dreifingu á nýju ári.
„Það var í raun farið að blunda í mér hvort kæmi ekki að því að Atli bjallaði í bróður sinn og gæti notfært sér eitthvað af þessari rödd sem ég hef verið að safna frá því ég var smápatti,“ segir Kalli, Karl Örvarsson, léttur í bragði þegar Hringbraut hafði samband við hann.
Þeir bræður urðu landsþekktir á níunda áratug síðustu aldar með hljómsveit sem þeir stofnuðu, Stuðkompaníið. Síðar fór Atli til náms í Bandaríkjunum en er nýfluttur heim til Akureyrar. Karl hefur sungið síðan, bæði sóló og í ýmsum hljómsveitum.
Karl segir að það hafi verið gleðifregnir þegar Atli afréð að flytja frá Los Angeles til Akureyrar eftir samfellda sigurdvöl þar ytra.
„Hafandi fylgst með hans ferli og framgangi unanfarin ár, í þessum risastóra og harða heimi sem hann starfar í, þá geri ég mér alltaf betur og betur grein fyrir hversu stórkostlegt það er hvert hann er kominn en hins vegar þá eiginlega kemur það mér um leið alltaf minna og minna á óvart að hann hafi náð þangað, því þessi drengur er samsafn af svo miklum hæfileikum á svo mörgum sviðum. Einstök tónlistargáfa, skipulagsgáfa, agi, einurð, ljúfmennska og hæfileikar til að vinna með og fá það besta út úr fólki,“ segir Karl, stoltur af Atla bróður.
„Jájá, nú er ég farinn að mæra blessaðan bróður minn út í eitt en hann á það alveg skilið. Ég sagði eitthvað á þá leið um daginn að ég væri að toppa á ferlinum að fá að syngja við undirleik London Chamber Orchestra og við það stend ég. Ég er ansi stoltur af útkomunni og er heiður að hafa fengið að vera með í þessu verkefni. Þarna finnst mér koma í ljós hvað Atli hefur gott innsæi í tónlistina með að finna réttan blæ, leiða saman ólík hljóðfæri og raddir til að gera tónsmíðar sínar þannig að þær hafi sérstöðu,“ segir Karl um þá reynslu að syngja í arabísku teiknimyndinni.
„Svo þarf ég reyndar að bæta því við að myndin er algjört listaverk.“
Áður hefur komið fram að Þorhildur Örvarsdóttir, systir Atla og Kalla, hefur sungið inn á fjölmargar kvikmyndir.