Ragnar Þór Pétursson kennari er einn þeirra fjölmörgu sem klóra sér í höfðinu eftir sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem fimm ungir menn voru sýknaðir af ákæru um nauðgun gegn 16 ára gamalli stúlku.
Kennarinn segir í færslu á eigin fésbók:
„Þetta hópnauðgunarmál truflar mig á svo mörgum sviðum. Það er fráleitt eins einfalt og margir reyna að halda fram. En það sem truflar mig mest af öllu er að sjá Svein Andra nánast hlakka yfir því að staðfest sé að nota megi börn sem kynferðislega stuðpúða og að hann skuli dirfast að kaupa sér aðgang að tímalínunni minni með færslu um nákvæmlega það.“
Kennarinn heldur áfram: „Drengirnir (sem fjölmiðlar sáu ástæðu til að minna okkur stöðugt á að kæmu úr Breiðholti) eru nýkomnir af barnsaldri. Sveinn Andri er miðaldra maður sem hefur ekki aðeins tök á að kaupa sér pláss á tímalínunni minni – heldur kaupir sér pláss í lífi barnungra kvenna og skilur þar allt eftir í rústum eins og siðferðilega óargadýrið sem hann er.“
Tekið skal fram að Sveinn Andri lögmaður varði ungu mennina. Stundin hefur greint frá því að lögmaðurinn sé eftir DNA próf sannarlega faðir barns sem ung stúlka átti en áður hafði lögmaðurinn neitað því. Það mál varð upphaf átaks.