Kallar eftir uppsögnum

Arna McClure, lögfræðingur hjá Samherja, segir að álit umboðsmanns Alþingis um stjórnsýslu Seðlabankans sé stórmerkilegt og kalli á afsögn „tiltekinna“ stjórnenda bankans. Í  álitinu kom meðal annars fram að svar Seðlabankans til forstjóra Samherja, Þorsteins Más Baldvinssonar, vegna ákvörðunar um afturköllun stjórnvaldssektar bankans til Þorsteins, hafi ekki verið eftir laganna reglum.

Einnig kemur fram að forsvarsmenn bankans hafi leynt gögnum frá umboðsmanni Alþingis og veltir Arna því fyrir sér hvort bankaráð Seðlabankans hafi einnig verið leynt upplýsingum, sem hafi leitt til tafa í málinu.

Dregur Arna saman svörtustu punktana úr skýrslunni að sínu mati og segir:

„Ég verð að viðurkenna að þegar ég horfi á framangreinda punkta klóra ég mér í hausnum yfir því að tilteknir stjórnendur seðlabankans (1) sjái ekki ástæðu til að segja starfi sínu lausu og axla þannig ábyrgð, eða (2) eftirlitsaðilar sjá ekki ástæðu til að láta tiltekna stjórnendur axla ábyrgð með því að víkja. Ég minni líka á að bankinn hefur í tugum tilvika lagt á stjórnvaldssektir eða gert sáttir. Í öðrum tilvikum hafa aðilar þurft að “sitja á sakamannabekk” í mörg ár og sitja uppi með tilheyrandi lögmannskostnað. Þessir aðilar hljóta að spyrja sig eins og Indriði: “Á ég að gera það”?“