"Stjórnarskrárvarinn réttur sjúklinga sýnist einfaldlega vera ríkari en samningsrétturinn," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is en þar segir hann stundaglasið vera tæmt, heilbrigðisráðherra verði að grípa inn í langvarandi vinudeilur sem lami starfsemi Landspítalans.
Hann skrifar: "Mánuður er frá því að landlæknir lýsti því yfir opinberlega að ekki væri unnt að tryggja öryggi allra þeirra sem leita þjónustu á Landspítalanum. Síðan hefur ástandið versnað. Erfitt er að ímynda sér að embættismaður hafi í annan tíma látið alvarlegri aðvörun frá sér fara. Við venjulegar aðstæður hefði mátt ætlast til tafarlausra viðbragða af hálfu heilbrigðisráðherra til að tryggja öryggi sjúklinga. En með hliðsjón af þeirri flóknu stöðu sem verið hefur á vinnumarkaðnum má réttlæta að hann hafi farið fram með gætni í nokkra daga eftir aðvörun landlæknis. Nú er stundaglasið hins vegar tæmt."
Þorsteinn segir að þegar hin alvarlega og þunga aðvörun landlæknis hafi staðið í mánuð geti heilbrigðisráðherra ekki setið lengur með hendur í skauti og treyst á guð og lukkuna. Hann verði að aðhafast í samræmi við stjórnskipulega ábyrgð sína. Hér verði að hafa í huga að þótt stjórnarskráin segi að í lögum skuli ákveða rétt manna til að semja um starfskjör sín þá mæli hún einnig fyrir um að öllum skuli tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika.
Þorsteinn kallar eftir inngripi: "Fram hjá því verður hins vegar ekki horft að heilbrigðisráðherra er mikill vandi á höndum þegar inngrip með lögum verður ekki lengur umflúið. Lausnin þarf að ver sanngjörn og varða veg þeirra starfsmanna spítalans sem eru í verkfalli fram á við þótt kröfum þeirra sé ekki mætt að fullu í einni svipan."