Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra, spyr í glænýjum pistli á Hringbraut hvort séu staða sé uppi að ef komi til friðsamlegra mótmæla á Austurvelli sé ekki hægt að skipta um forseta.
Í pistlinum fer Þorsteinn yfir ákvörðun Ólafs Ragnars í gær og bendir á að hann hafi kúvent nýársdagsákvörðun sinni um að gefa ekki kost á endurkjöri. \"Flest bendir til að kúvendingin hafi sprottið upp af tveimur rótum. Önnur er stríð löngun til að halda áfram. Hin er ákafur vilji nægjanlega margra stuðningsmanna til þess að leyfa lönguninni blómstra.\"
Þorsteinn telur að Ólafur Ragnar hafi staðið sig vel í umrótinu á dögunum.
\"Forsetinn sýndi að hann var vandanum vaxinn þegar á reyndi. Það hleypti stuðningsmönnunum greinilega kapp í kinn. Ugglaust hefur svo hjálpað til að engir þeirra frambjóðenda sem komnir voru fram voru líklegir til að velgja forsetanum undir uggum.\"
Þá fer Þorsteinn yfir helstu rök forsetans fyrir nýrri framboðsákvörðun, þ.e. að hann hafi verið starfi sínu vaxinn þegar fráfarandi forsætisráðherra þreifaði fyrir sér um þingrof eftir að hann naut ekki lengur meirihlutastuðnings á Alþingi. En hann hafi líka bent á friðsamleg mótmæli sem fram hafa farið á Austurvelli og að hugsanlega geti reynst erfitt að mynda ríkisstjórn að loknum haustkosningum.
\"Í sjálfu sér er ekkert að því að forsetinn bjóðist nú til að sitja lengur. En röksemdir forsetans vekja þá einföldu spurningu: Hvenær er ekki hægt að skipta um forseta?
Er ekki hægt að skipta um forseta þegar fólk safnast saman til friðsamlegra mótmæla í samræmi við stjórnarskrárvarinn rétt til slíkra athafna? Er ekki unnt að skipta um forseta ef reikna þarf með að stjórnarmyndun geti orðið snúin? Er ekki unnt að skipta um forseta ef sá möguleiki er fyrir hendi að sitjandi forsætisráðherra missi nauðsynlegan stuðning á þingi?\"
Þá telur Þorsteinn að tímasetning yfirlýsingar Ólafs Ragnars muni koma í veg fyrir að fleiri öflug forsetaefni blandi sér í baráttuna. Vegna þeirrar greiningar má benda á að tvö forsetaefni hafa nú þegar afturkallað framboð eða lýst yfir að þau fari ekki fram og flest bendir til að Guðni Th, ætli sér ekki að fara fram gegn sitjandi forseta.
Lesa má pistil Þorsteins í heild hér.
Í viðtali við Ríkisútvarpið í morgun bætti Þorsteinn um betur í gagnrýni sinni á rökin að baki ákvörðun forsetans, sagði þær barnalegar og héldu ekki vatni. Hann tryði því varla að Ólafur Ragnar tryði sjálfur eigin málflutningi.