Kafaldsbylur í dag og víða ófærð

Veðurstofan varar við éljagangi á öllu vestanverðu landinu næsta sólarhringinn, en kafaldsbylur er nú á Hellisheiði og Þrengslum og útsýni af mjög skornum skammti.
 
Gul viðvörun er í gildi fyrir Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir, Norðurland Vestra og Suðausturlandi. Þorsteinn V. Jónsson, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofunni segir veðurlagið af öllu tagi þessi dægrin, mikil hlýindi hafi verið í gær, rigning og stormur eða rok og svo hafi skipt hratt yfir í kaldara loft um vestanvert landið: \"Þá frystir víðast hvar og koma mjög dimm él, þannig við viljum aðallega vara við éljaganginum á öllu vestanverðu landinu núna næsta sólarhring.“

 

Búast megi við að veðrið hafi áhrif á umferðina því glerhálka geti myndast á vegum í dimmum éljagangi.