Davíð Oddsson hefur gert sér grein fyrir að framboð Ólafs Ragnars sé veikara nú en ella og þess vegna stekkur hann fram. Þetta segir Sigurbjörg Þorgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur. Kjör Davíðs gæti tryggt Davíð forsetaembættið segir Sigurbjörg, enda sé búið að gera embættið mjög pólitískt huga fólks. Spurning sé hvort nýir menn eins og Guðni og Andri verði undir í átakahyggjunni.
Þetta kom fram á Þjóðbraut í samtali Sigurbjargar við Sigurjón M. Egilsson á Hringbraut í morgun. Hinir \"gömlu kaldastríðshákar\" hafi tekið yfir þennan vettvang eins og stjórnsýslufræðingurinn orðaði það á Hringbraut. Ef val hefði staðið yfir milli Andra Snæs og Guðna hefði boðist möguleiki á nýja sýn. Nú sé verið að draga inn tvo átakastjórnmálamenn í baráttuna um forsetaembættið sem sé afar óheppilegt. Þeir tefji framfarir og séu báðir að nokkru ábyrgir fyrir hruninu.