Kaldar kveðjur inn á sáttafund

Bandalag háskólamanna sendi frá sér tilkynningu strax í gærkvöldi þar sem lýst er yfir furðu á orðum forsætisráðherra í fréttum Stöðvar 2, þar sem hann lýsti yfir því að ekki yrði samið við ríkisstarfsmenn fyrr en að loknum samningum á almennum vinnumarkaði.  Þetta þykja heldur kaldar kveðjur inn á samningafund sem hefjast á nú um hádegið.


BHM segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra draga samningsrétt ríkisstarfsmanna í efa með framgöngu sinni.  Orð hans þykja sérstaklega óheppileg á þessum tímapunkti þegar kjaraviðræður eru á mjög viðkvæmu stigi.  Í ljósi ummælanna draga fulltrúar BHM samningsvilja ríkisins mjög í efa.


Forsætisráðherra hefur verið heldur yfirlýsingaglaður í fjölmiðlum nú um helgina, bæði hvað snertir ástandið á vinnumarkaði, pólitíska afstöðu stéttarfélaganna og veruleikafirringu þjóðarinnar.  Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig kjaraviðræður þróast í kjölfar þessara ummæla en allt stefnir í verkfall hjúkrunarfræðinga á miðvikudag og allsherherjarverkfall starfsmanna á almenna vinnumarkaðnum í næstu viku.