Kæra hefur borist sýslumanninum á Vestfjörðum vegna gildis kjörskrár í hreppsnefndarkosningum í Árneshreppi á Ströndum.
Kæran kemur frá Elís Svavari Kristinssyni og Ólafi Valssyni em telja skilyrði til að ógilda niðurstöðu kosninganna. mbl.is segir frá þessu í dag.
Lögheimilisflutningar í hreppinn í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna vaoru umdeildir og sumir ógildir af Þjóðskrá. Pólitískt hitamál var grundvöllur deilna vegna flutninga manna , eða bygging Hvalárvirkjunar.
Í kærunni eru talin eru upp þó nokkuð mörg meint brot á reglum, til dæmis um framlagningu kjörskrárinnar, þ. á m. brot á skyldu til að auglýsa aukafundi hreppsnefndar, brot á skyldu til að auglýsa hvar kjörskrá lægi frammi, brot á skyldu til að leggja hana fram tíu dögum fyrir kjördag og síðustu daga fyrir kjördag og brot á skyldu til að senda tilkynningar til kjörstjórnar.