Kærir lögmann vegna nauðgunarmáls

Lögmaður annarrar konunnar sen kært hefur nauðgun í Reykjavík ætlar að kæra lögmann meints geranda vegna brota lögmannsins. Ríkisútvarpið sagði frá þessu í hádegisfréttum.

Jóhanna Sigurjónsdóttir lögmaður telur að ítarleg umfjöllun um málið hafi spillt upplýsingum. Opinberar atvikaklýsingar hafi áhrif á vitni sem eigi eftir að gefa upplýsingar.

Jóhanna sagði í fréttaviðtali við Ríkisútvarpið að kynferðisbrotamál væru alltaf flutt í lokuðu rými að gefnu tilefni. Hún minnist þess ekki að svona mál hafi komið upp áður að lögmaður, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hafi með trúnaðarrofi brotið gegn sínum starfskyldum, hann hafi brotið lög um hegningarlög auk annars með því að ræða málið í fjölmiðlum. Vilhjálmur hafi öll gögn undir höndum, hann fái sem verjandi afhent gögn í trausti þess að hann bregðist ekki skyldum sínum.

Sjá frétt Rúv hér.

Uppfært kl. 14.40: Í samtali við visir.is krefst Vilhjálmur afsökunarbeiðni frá Jóhönnu á rakalausum fullyrðingum. Hann bendir á að gögn sem Fréttablaðið hafi nýtt sér sem heimildir komi sínum umbjóðanda ekki vel. Vilhjálmur neitar að hafa lekið trúnaðarefni í fjölmiðla heldur hafi hann hrakist til að ræða málið opinberlega eftir rangar fullyrðingar Fréttablaðsins.

Sjá hér.