Kærðir brotamenn neita alfarið sök

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður birti í nótt myndband af íbúð þeirri í Hlíðunum sem Fréttablaðið sló upp í gær að væri útbúin til nauðgana. Hann telur myndbandið sanna að svo sé ekki og boðar málsókn gegn fjölmiðlinum.

„Í Fréttablaðinu í gær, 9. nóvember 2015, var því slegið upp á forsíðu, að íbúð í Hlíðunum hafi verið útbúin til nauðgana. Hér er myndband af íbúðinni. Dæmi nú hver fyrir sig. Engu að síður kýs aðalritstjóri Fréttablaðsins að berja höfðinu við steininn og segir í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í gær að Fréttablaðið standi við fréttina. Kærðu neita alfarið sök og styðja gögn málsins og vitnisburðir framburð þeirra. Aftaka kærðu á netinu í gær mun verða íslendingum til vansa um aldir alda. Á því ber Fréttablaðið fulla ábyrgð ásamt hlutaðeigandi mykjudreifurum. Á þá ábyrgð mun reyna,“ skrifar Vilhjálmur á facebook.

Samkvæmt 2. mgr. 236. gr. alm. hgl. nr. 19/1940 er birting og útbreiðsla ærumeiðandi aðdróttunar sjálfstætt brot. Fari svo að mennirnir tveir sem grunaðir eru um hrottaleg brot fari ekki fyrir dóm eru líkur á að Vilhjálmur muni ekki láta duga að krefja Fréttablaðið um 10 milljóna króna greiðslu fyrir hvorn hinna grunuðu sem hann ver heldur einnig almenning sem dreift hefur myndum af hinum grunuðu t.d. á samfélagsmiðlum.

Fram kom a.m.k. óbeint í svörum lögreglu í gær að mennirnir neituðu sök. Má e.t.v. álykta að engin vitni hafi verið að meintum árásum, að mennina tvo greini á við meinta þolendur samkvæmt yfirheyrslum og að ekki hafi verið um meirháttar sýnilegar líkamsmeiðingar á konunum tveim sem kært hafa nauðgun. Báðir vinirnir sem grunaðir eru um brotin, annar um eina nauðgun en hinn um báðar, hafa að sögn Vilhjálms flúið til útlanda vegna „aftökunnar á Íslandi“. Lögmaður þeirra staðfestir nú að hinir grunuðu neiti sök.

Færslu Vilhjálms og myndbandið má sjá hér.