Ingibjörg Guðbjartsdóttir var ráðin forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands haustið 2009. Skömmu áður en hún tók við því starfi hafði hún veitt forsvarsmönnum Aserta AB ráðgjöf vegna gjaldeyrisviðskipta sem félagið stundaði fyrr á því ári.
Áður hafði hún starfað með 3 af eigendum Aserta hjá Straumi sem féll í bankahruninu en með þeim hafði tekist góður vinskapur. Það kom því þessum fyrrverandi samstarfsmönnum og skjólstæðingum hennar í opna skjöldu þegar Ingibjörg kærði viðskiptin sem hún sjálf hafði ráðlagt þeim um, verandi komin í nýtt starf hjá Seðlabankanum. Voru þeir handteknir í kjölfar kæru Ingibjargar og húsleit gerð á heimilum þeirra og skrifstofu í lok janúar 2010.
Sem kunnugt er voru allir meintir sakborningar sýknaðir af dómstólum, rúmum 6 árum eftir að handtakan fór fram og var Aserta-málið þá orðið lengsta sakamál í íslenskri réttarsögu. Farið verður rækilega yfir þetta mál í þættinum Atvinnlífið sem verður á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30 og þar verður m.a. rætt við Karl Löve Jóhannsson, stofnanda Aserta AB.
Þess má geta að enginn af forsvarsmönnum Seðlabankans, þau Már Guðmundsson Seðlabankastjóri, Þórunn Guðmundsdóttir formaður bankaráðs, né Ingibjörg Guðbjartsdóttir (sem sögð er í leyfi frá störfum) þáðu boð um að koma í viðtöl í þáttinn.