Kærastinn hætti með henni eftir örlagaríka íslandsferð: „ég get ekki hætt að gráta“

Ísland var síðasti staðurinn sem Lora Pope bjóst við að hún myndi glata eigum sínum. Lora, sem er frá Kanada ákvað í júní að sækja Ísland heim ásamt kærasta sínum og vinum. Á meðan þau dvöldu hér á landi var brotist inn í íbúð þeirra. Lora segir að draumaferðin hafi breyst í martröð og þá hafi það sem gerðist hér á landi orðið til þess að eyðileggja samband hennar við kærastann.

Í helgarblaði DV er viðtal við Loru. Þar er greint frá því að hún haldi úti vinsælli bloggsíðu þar sem hún fjallar um ferðir sínar um heiminn. Hún var því með dýran ljósmyndabúnað með sér og voru allir í hópnum ljósmyndarar. Ákveðið var að fagna afmæli hennar á Íslandi og fara á tónlistarhátíðina Secret Solstice. Fyrstu dagarnir voru eins og í draumi.

„ .. að kvöldi þrítugasta afmælisdagsins míns, þann 21. júní. Þá varð mín versta martröð að veruleika.“

Hópurinn dvaldi í íbúð sem þau höfðu leigt í gegnum Airbnb. Þau töldu hverfið vera öruggt. Eftir vel heppnað kvöld á Secret Solstice sneri hópurinn heim. Þegar þangað var komið var ljóst að brotist hafði verið inn, búið var að fara í gegnum allar ferðatöskur og stela fartölvum, myndavélum og dýrum ljósmyndabúnaði og fleiri verðmætum og bílaleigubílnum.

Bílaleigubílinn fannst úti í vegarkanti og höfðu rúðurnar verið brotnar. Ekkert af þýfinu fannst í bílnum. Lora segir að ferðin hafi tekið mikið á og aðeins átt nokkur ánægjuleg augnablik það sem eftir lifði ferðarinnar hér á landi. Lora greinir svo frá því að vandræðin og sárindin hafi haldið áfram eftir að heim var komið. Lora segir að kærastinn hafi hætt með henni fljótlega eftir að þau yfirgáfu Ísland. Sambandið þoldi ekki álagið út af áfallinu.  

 „Ég fer oftast grátandi í gegnum daginn,“ segir Lora og bætir við á öðrum stað: „Ég er margfalt svekktari yfir því að þessi hræðilegi atburður átti sér stað og það var ekkert sem við gátum gert til að afstýra því. Og nú er það búið að hafa áhrif á samband mitt við fólkið í kringum mig. Mér finnst ég vera alein í heiminum. Ég veit ekki hvað ég á að gera við sjálfa mig. Ég get ekki hætt að gráta.“

Hér má lesa viðtalið í heild sinni, á vef DV.is.