Kæra sa vegna atkvæðagreiðslu eflingar þingfest í dag

Kæra Samtaka atvinnulífsins vegna atkvæðagreiðslu Eflingar um verkfall verður þingfest í félagsdómi í dag. Í morgun staðfesti Efling að verkfall meðal hreingerningafólks á hótelum hafi verið samþykkt með miklum meirihluta og fer verkfallið fram þann 8. mars. SA telja atkvæðagreiðsluna ólöglega og krefjast þess að verkfallið verði dæmt ólögmætt. Mbl.is greinir frá.

Stefnan verður gefin út af forseta félagsdóms í dag og munu fulltrúar SA birta fulltrúum Eflingar hana formlega, en þó hefur Efling fengið að sjá stefnuna fyrirfram. Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA, segir í samtali við Mbl.is að SA og Efling munu bæði skila inn greinargerð í málinu og stefnt er að því að málflutningur fari fram á mánudaginn.

Ragnar segir að SA telji að aðeins þeir sem verkfallið nái til eigi að geta kosið um það en Efling telur að allir þeir sem falla undir tiltekinn kjarasamning innan ferðaþjónustunnar, þar á meðal starfsmenn í veitinga- og gistihúsageiranum, megi kjósa. Auk þess er deilt um hvers lags atkvæðagreiðslu hafi verið að ræða. Ragnar segir SA telja atkvæðagreiðsluna vera með yfirbragði kjörfundar, þar sem gildi 20 prósent lágmarksþátttaka, en Efling túlkar hana sem póstatkvæðagreiðslu, þar sem er engin lágmarksþátttaka. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var tæplega 11 prósent.