Hafnarfjarðarbær hefur í samvinnu við FH undirbúið framkvæmdir við nýtt knatthús í Kaplakrika. Framkvæmdirnar hafa verið nokkuð umdeildar því fyrir eru tvö knatthús á svæðinu. Samþykkt var í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar í ár að veita 720 milljónir króna í byggingu nýs knatthúss í Kaplakrika.
Tilboð sem bárust í framkvæmdina voru öll verulega yfir kostnaðaráætlun og var þeim öllum hafnað. Í framhaldinu sömdu bæjaryfirvöld og FH um að íþróttafélagið tæki að sér að byggja, eiga og reka knatthúsið. Bærinn kaupi þess í stað íþróttamannvirkin Risann og Dverginn af FH og eignast þau að fullu, fyrir 790 milljónir króna. Tillaga þessa efnis var samþykkt á bæjarráðsfundi í síðustu viku með þremur atkvæðum meirihluta. Fulltrúar minnihluta sátu hjá.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/kaera-nidurstodu-baejarstjornarfundar