Kæra hatursummæli um kynhegðun

Samtökin 78 hafa afráðið að kæra tíu einstaklinga til lögreglu fyrir hatursfull ummæli í garð hinsegin fólks sem þau telja vera refsiverð. Ummælin sem samtökin kæra eru sögð fela í sér háð, róg og smánun í garð hinsegin fólks vegna kynhneygðar þess eða kynvitundar.


Hilmar Hildarson Magnúsarson formaður Samtakanna ´78 segir í Fréttablaðinu í dag að þessi aðgerð feli í sér skýr skilaboð af hálfu samtakanna. "Hingað og ekki lengra," segir hann og bætir við. "Það er fjöldi fólks í okkar röðum, hinsegin fólk um allt land, börn þess, fjölskyldur og vinir sem taka þessari umræðu þungt. Ófögur og andstyggileg orð sem beint hefur verið gegn hinsegin fólki valda því hugarangri og vanlíðan og í mörgum tilvikum sári sem illa grær - eða alls ekki," segir Hilmar við blaðið.


Alhæfingar um hinsegin fólk hafa verið áberandi í opinberri umræðu og á samfélagsmiðlum undanfarin misseri. Þau hafa meðal annars heyrst iðulega í þáttum Útvarps Sögu og úr munni þjóðkunnra manna eins og Gylfa Ægissonar tónlistarmanns og Snorra Óskarssonar sem kenndur er við Betel.