Kæra fullorðna fólk á facebook: hér er vinalegt ákall til ykkar - „endilega deilið kæru vinir“

„Síðustu daga hefur mikið verið fjallað um Gretu Thunberg, sem nýtur réttar síns sem barn og sem manneskja til að láta rödd sína heyrast í loftslagsumræðunni. Því miður eru margir fullorðnir að skrifa niðrandi og hatursfullar athugasemdir um Gretu sem manneskju. Það er EKKI ásættanlegt. Sem loftslagsaðgerðarsinni, sem barn og sem manneskja á Greta, ásamt öðrum, rétt á að láta rödd sína heyrast!“

Þetta kemur fram á vef Unicef á Íslandi. Þar segir enn fremur:

„Við viljum biðja fólk um að hugsa sig tvisvar um áður en það skrifar athugasemdir á samfélagsmiðla. Hér er um að ræða manneskja sem á að vera sýnd virðing. Líka á internetinu.

Við hjá UNICEF styðjum börn sem berjast fyrir betri framtíð. Þau hafa rétt á að vera vernduð gegn hatri.

Það er á okkar ábyrgð, og þinni!

Við vonum að þú munir hjálpa Gretu, og öllum þeim mögnuðu og hugrökku börnum sem eru að tjá sig, að njóta réttar síns og hlusta.

Endilega deilið kæru vinir“