Kæra áform um gistiskýli fyrir unga karla með vímuefnavanda

Nokkrir eigendur fasteigna á Grandanum hafa ákveðið að kæra fyrirhugaða starfrækslu gistiskýlis fyrir unga heimilislausa karlmenn með mikinn vímuefnavanda á svæðinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Telja kærendur að starfsemin samræmist hvorki skipulagsáætlunum né lóðarleigusamningi, en borgin telur að um þjónustustarfsemi sé að ræða. Vísir.is greinir frá.

Í nóvember síðastliðnum samþykkti borgarráð kaup á húsnæði við Grandagarð. Húsnæðið er hugsað sem gistiskýli og mun rúma 15 unga karlmenn með mikinn vímuefnavanda í einu. Áætlað er að gistiskýlið verði opið frá klukkan 17 til tíu á morgnana.

Kærendur krefjast ógildingar á leyfisveitingu til innréttingar gistiskýlisins og telja starfrækslu þess ekki samræmast þeirri starfsemi sem fyrir er á svæðinu. Grandanum er lýst sem einu mest spennandi svæði borgarinnar undir veitinga- og verslunarstarfsemi, og raunar undir allar tegundir atvinnustarfsemi, hönnunarvinnu og nýsköpunar. Í kærunni er lýst yfir verulegum áhyggjum af því að gistiskýli falli illa að þessari starfsemi svæðisins og muni verða til þess að hamla frekari þróun og uppbyggingu þar.

Málinu er vikið að sprautufíklum og segir um þá í kærunni: „Ljóst er að slíkum hópi manna munu fylgja ýmiss konar félagsleg vandamál sem munu koma harkalega niður á þeirri starfsemi sem nú blómstrar á svæðinu.“ Ekki er þó farið nánar út í hvernig slík félagsleg vandamál muni bitna á starfseminni.