Justice league fær 150 m.kr. frá íslenska ríkinu

End­ur­greiðslur úr Kvik­mynda­sjóði Íslands vegna fram­leiðslu­kostnaðar við verk­efni sem lokið hef­ur á þessu ári nema 369.530.601 krón­um. Það verk­efni sem hæsta end­ur­greiðslu hef­ur fengið er sjón­varpsþáttaröðin Stella Blóm­kvist í fram­leiðslu Sagafilm, 112 millj­ón­ir króna.

Sjóður­inn end­ur­greiðir fram­leiðend­um kvik­mynda eða sjón­varps­efn­is á Íslandi 25% fram­leiðslu­kostnaðar sem til fell­ur hér á landi eft­ir nán­ar til­greind­um skil­yrðum laga um tíma­bundn­ar end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar á Íslandi nr. 43/​1999 og reglu­gerð nr. 450/​2017 sem hef­ur stoð í lög­un­um.

Næst á eft­ir Stellu Blóm­kvist í röðinni er kvik­mynd­in Ég man þig sem gerð var eft­ir sam­nefndri bók Yrsu Sig­urðardótt­ur, með tæp­lega 60 millj­ón­ir króna, í fram­leiðslu Zik Zak. Þar á eft­ir sjón­varpsþætt­irn­ir Big­gest looser sem fram­leidd­ir voru af Sagafilm og fengu um 41 millj­ón króna end­ur­greidda.

End­ur­greiðslur vegna verk­efna sem lauk árið 2017 námu sam­tals um 961 millj­ón króna. Hæsta end­ur­greiðslu fékk Tru­en­orth vegna fram­leiðslu er­lendu kvik­mynd­ar­inn­ar Justice League, 151.805.371 krón­ur. Fyr­ir­tækið fékk einnig næst­hæsta end­ur­grieðslu, 98.921.201 krón­ur fyr­ir fram­leiðslu á þætti í þáttaröðinni Black Mirr­or. Þriðja sætið skipaði Eiður­inn, kvik­mynd Baltas­ars Kor­máks í fram­leiðslu RVK Studi­os með 89.769.757 króna end­ur­greiðslu.

Morgunblaðið segir frá.