Júróvison vikunni lokið en það er þó mikil söngstemning í þættinum Lóa og lífið sem sýndur verður kl.20 í kvöld á Hringbraut. Þar eru gestir söngdívurnar Erna Hrönn og Heiða Ólafs , sem taka lagið í þættinum. Erna Hrönn og Heiða hafa verið perluvinkonur í mörg ár, auk þess að vinna mikið saman. Báðar hafa þær tekið þátt í Eurovision og hér má sjá skemmtilegt myndskeið þar sem stöllurnar taka lagið fyrir Lóu og syngja ,,Þig vil ég fá.”
Lóa og lífið er á dagskrá kl.20.00 en í næstu viku, fær þátturinn nýjan frumsýningartíma og verður kl.20.00 öll laugardagskvöld. Skemmtilegir þættir í umsjón Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur.