Júnímánuður aldrei heitari

Nýliðinn júnímánuður sló öll hitamet á heimsvísu og meðalhiti fyrstu sex mánuði ársins var sá mesti síðan mælingar hófust árið 1880. Líklegt þykir að árið 2015 verði í heild sinni það heitasta í sögunni. 

Þetta kemur fram á vef Haf- og loftslagsrannsóknastofnunar Bandaríkjanna, en fréttastofa RÚV greinir frá. Þar segir að þrátt fyrir að engin hitamet hafi verið slegin hér á landi í júní hafi mánuðurinn aldrei frá upphafi mælinga mælst heitari á jörðinni. 

Meðalhiti fyrstu sex mánuði ársins var enn fremur sá mesti sem sögur fara af, en hitamet voru slegin í fjórum af þeim sex mánuðum sem liðnir eru af árinu. 

Júnímánuður hefur reynst verulega heitur og hafa hitabylgjur riðið yfir víða um heim. Á fréttavef RÚV kemur fram að um 1.200 manneskjur hafi látið lífið í hitabylgju sem reið yfir suðurhluta Pakistan í júní og þá hefur mánuðurinn verið sérlega heitur í Evrópu, til að mynda á Spáni og Ítalíu. 

Ekki er ólíklegt að árið 2015 verði í heild sinni það heitasta í sögunni - en fyrra met á árið 2014.