„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fengið að bjarga lífi þessa unga drengs og verð það alla tíð.“
Þetta segir Júlíus Ármann Júlíusson í samtali við Morgunblaðið. Hann bjargaði lífi tveggja ára drengs á Hamborgarafabrikkunni á Akureyri. Júlíus tók eftir að matarbiti stóð í drengnum sem sat í bás ásamt móður sinni og vinkonu hennar. Móðirin ætlaði fyrst í örvæntingu sinni með drenginn út að sögn Júlíusar. Bætir Júlíus við að starfsfólk og gestir á staðnum hafi frosið.
„Ég tek drenginn úr höndunum á henni og næ að fara með hægri höndina undir bringuna, einhvern veginn beygi mig niður með hann og slæ létt á milli herðablaðanna.“
Á endanum tókst Júlíusi að ná bitanum úr hálsi drengsins. Segir Júlíus að móðirin hafi verið í áfalli.
„Hún var alveg í sjokki, skalf og nötraði og það voru allir einhvern veginn í sjokki. Hún var að sjálfsögðu gríðarlega þakklát og bara kom ekki upp orði.“
Í samtali við Morgunblaðið segir Júlíus að hann vilji ekki að litið sé á sig sem hetju.
„Allur staðurinn klappaði fyrir þessu en það er ekki það sem ég sé í þessu, það var bara gott að ég var á þessum stað á þessari stund. Ég er gríðarlega þakklátur fyrir það að hafa fengið að bjarga lífi þessa unga drengs og verð það alla tíð.“
Þá greinir Júlíus frá því að hann fari á hverju ári á skyndihjálparnámskeið.
„Það hjálpaði mér virkilega mikið og ég hvet alla til þess að koma sér einhvern tímann á námskeið. Læra fyrstu viðbrögð, hvað maður á að gera og hvernig maður á að bregðast við.“