Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, var handtekinn í morgun af bresku lögreglunni. Assange hafði dvalið í sendiráði Ekvadors í Lundúnum um sjö ára skeið. Lögreglunni var veittur aðgangur að sendiráðinu, þaðan sem hún bar Assange út í járnum. CNN.com er meðal þeirra sem greina frá.
Handtaka Assange var möguleg eftir að Ekvador dró til baka hæli sem honum hafði verið veitt. „Slæm hegðun“ er sögð vera ástæðan fyrir því að Ekvador dró hælisveitinguna til baka. Assange var upphaflega veitt hæli til að forðast það að hann yrði framseldur til Svíþjóðar, þar sem hann var sakaður um kynferðisbrot. Það mál hefur verið látið niður falla en einn ásakenda hans hefur þó hvatt til þess að málið verði tekið upp að nýju.
Assange er nú í haldi í ónefndri lögreglustöð í Lundúnum og verður leiddur fyrir rétt við fyrsta tækifæri. Ástæðan fyrir handtöku hans er sögð vera vegna þess að hann mætti ekki fyrir breskan rétt árið 2012, en einnig vegna þess að Bandaríkin munu krefjast framsals hans. Í Bandaríkjunum stendur hann frammi fyrir því að verða sóttur til saka vegna tölvuinnbrota.