Júlí var metmánuður hjá icelandair

Farþegar í millilandaflugum Icelandair í júlí fjölgaði um 17% miðað við júlí árið áður og voru samtals 415 þúsund talsins. Farþegafjöldinn er sá mesti í einum mánuði frá stofnun félagsins.

Sætanýtingin félagsins var enda með besta móti, eða 88,9% og jókst um 3,2 prósentustig milli ára. Hún hefur aldrei verið hærri í júlí. Framboðsaukning milli ára nam 14%

Þetta kom fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar í gærdag, en þar segir jafnframt að farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 33 þúsund í júlí. Framboð félagsins á þessum flugum hafi verið dregið saman um 5% miðað við júlí 2014. Sætanýtingin var 77,4 prósent og jókst um 5,1 prósent milli ára.

Fraktflutningar félagsins jukust um 3% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 5% á milli ára. Herbergjanýting var 90,4% samanborið við 89,1% í júlí 2014.

Gengi bréfa Icelandair Group í Kauphöllinni var 26,2 krónur á hlut við lok viðskipta í gær og lækkaði um 0,4 prósent í 102 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfanna hefur hækkað nokkuð að undanförnu en það stóð í um 21,5 krónum á hlut í byrjun maímánaðar.