Jörð titraði líka í reykjavík og á akranesi: „mikið panik hér í grindavík. fólk verulega skelkað“

Tveir jarðskjálftar mældust  nú í kvöld kl. 22:22 og var sá skjálfti fjórir að stærð 4,0 og klukkan 22:24 mældist annar stærri 4,3. Fjölmargir eftirskjálftar hafa mælst í kjölfarið og ljóst að þeir hafa fundist vel á svæðinu.

Upptök þeirra eru 4-5 km norðnorðaustur af Grindavík.

Skjálftarnir fundust vel á svæðinu og hafa tilkynningar borist frá Höfuðborgarsvæðinu og allt norður að Akranesi. 

Á samskiptamiðlum hafa fjölmargir tjáð sig um skjálftana:

Halla Togga Þórðardóttir segir: „Mikið panik hér í Grindavík. Fólk verulega skelkað.“ Þá segir Haukur Erlingsson að skjálftarnir hafi einnig fundist í Borgarnesi. Berglind Kristins segir:

„Fundum vel fyrir þeim báðum uppá Ásbrú.“

Þuríður Gísladóttir kveðst hafa fundið fyrir skjálftanum á Suðurgötu í Reykjavík.

„Ekki sterkt ,smá hristingur, sat í sófastól.“ Þá sagði annar íbúi á Grindavíkursvæðinu:

„Omg hér kom svakalegur jarðskjálfti.“