Jörð mun skjálfa í heilan mánuð

Orkuveitan, sveitarstjórn, lögreglustjórinn á Selfossi og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vilja vekja athygli á því að vegna breytinga í tengslum við niðurdælingu hjá Hellisheiðarvirkjun þá telja vísindamenn að tímabundið séu auknar líkur á að jarðskjálftar verði á niðurdælingarsvæðinu.


Í tilkynningu frá Almannavörnum í morgun segir að slíkir jarðskjálftar gætu náð þeirri stærð að finnst vel í byggð. Áætlað sé að aðgerðin standi yfir í um mánuð og ljúki þann 19. júní 2015.  


Skjálftar af þessu tagi eru þekkt fyrirbrigði á svæðinu en þeirra gætti mjög fyrir fjórum árum á Hellisheiðinni, en skjálftar voru þá iðulega vel yfir 3 á Richter og funust fyrir vikið vel á höfuðborgarsvæðinu.