Jónína leós valdi bestu bækurnar

Jónína Leósdóttir, rithöfundur var gestur Sigmundar Ernis í lestrarhestaþættinum Bókin sem breytti mér á Hringbraut í gærkvöld og fór þar yfir bækurnar sem hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.

Ljóðskáldið Magnús Ásgeirsson kom þar einna fyrst upp í hugann, en hann var kunnastur sem mikilvirkur þýðandi um sína daga. Eins og fram kom í þættinum sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, sagði Jónína að bækur umrædds Magnúsar og Steins Steinarrs sem voru geymdir í bókahillu föður hennar frammi í stofu hafi smám saman safnast inn í herbergið hennar á unglingsaldri.

Í þættinum nefnir hún líka til sögunnar býsnin öll af bókum um samskipti fólks sem hún segir vera þann efnivið sem heilli hana hvað mest við lestur bóka, svo sem sjá má af hennar eigin bókum sem eru orðnar fimmtán að tölu.

Raunar mætti Jónína með fyrstu og síðustu bókina sína í þáttinn, en sú fyrsta sem er endurminningabók séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar, skrifuð af Jónínu 1988, hafði mikil áhrif á Jónínu, enda viðfangsefnið einhver áhugaverðasta manneskja síðustu aldar hér á landi - og sannur brautryðjandi í trúmálum og hugsun.

Síðasta bókin sem þau Jónína og Sigmundur Ernir ræddu svo um var Konan í blokkinni sem Jónína var að senda frá sér og hefur jafnt fengið góða dóma og sölu á síðustu vikum, en hún kom út í byrjun árs.

Bókin sem breytti mér er endursýnd í dag og annaðkvöld, en gestur þáttarins að viku liðinni verður Mörður Árnason, íslenskufræðingur.