Jónína Benediktsdóttir gerir upp hjónaband sitt við Gunnar Þorsteinsson, áður kenndan við Krossinn, í færslu á Facebook í dag. Tilefni skrifanna eru þau að í dag eru níu ár liðin frá því að þau gengu í hnapphelduna. Í apríl síðastliðnum greindi DV frá því að þau væru skilin að borði og sæng.
Jónína segir að fljótlega hafi borið á erfiðleikum í hjónabandinu. Hún segir:
„Í dag eru níu ár síðan við Gunnar giftum okkur. Fljótlega eftir það hófst barátta hins góða og hins illa hjá okkur báðum. Ég er ekki stolt af mínum viðbrögðum við því sem yfir okkur helltist en er ákveðin í að afgreiða það og þá sem sögðu eitt, gerðu annað og ímynda sér það þriðja, sáu eitthvað í anda sínum annað en við hin „óvinir þeirra“ sjáum.“
Jónína segir það hafa verið skóla fyrir sig að kynnast þeirri athygli sem fylgdi Gunnari og umdeildum sértrúarsöfnuði hans. „[S]á skóli var ekki ókeypis. Fjölmiðlafár enn eina ferðina, dómsmál, niðurlægingar og kvíði með kærurannsókn í tvö ár sem síðan var felld niður.“
„Ég vissi aldrei hvað kæmi næst frá kristnu fólki en kvíði, svefnleysi og samskiptaleysi lamaði mig. Sennilega var ég ekki nægilega undirbúin fyrir rétttrúnaðarsinna sem setja sín vandamál öll á Guð og vilja ekki ræða hlutina og ná niðurstöðu. Stundum öfunda ég slíka en oftast ekki,“ bætir hún við.
Jónína segir að þrátt fyrir að hún og Gunnar hafi þegar á hólminn var komið nánast ekki deilt neinum skoðunum hafi hún ekki misst trúna á Guð. „Sá Guð sem ég trúi á vill að við séum kærleiksrík í verki, það er samt augljóst að við lögðum af stað í trú og í kærleika og höfum átt góða tíma inn á milli þótt hugmyndafræðin hafi aldrei gengið upp um lífið og tilgang þess. Það er stressandi að hafa ólíkar skoðanir á flestum málum en samt iðulega hafa rosalega gaman.“
Þrátt fyrir allt virðist enn vera gott á milli hennar og Gunnars. Jónína segir að lokum: „Ég hef getað haldið í trúna á Jesú og hann reisir okkur bæði vonandi og gerir lífið léttara. Ég þakka þér daginn Gunnar Þorsteinsson, þetta var æðislegur dagur og veislan skemmtileg. Hver elskar ekki gott partý? Nú er að þrífa upp eftir það!“