Jónas hjólar í „hetjur tjáningarfrelsisins“: „Taka aldrei upp hanskann fyrir Eddu Falak“

Áhrifavaldurinn og aktívistinn Edda Falak opnaði sig í dag um ógeðfelldar hótanir í sinn garð í viðtali í Morgunútvarpinu. Rithöfundurinn Jónas Reynir Gunnarsson tjáði sig um hótanirnar í hennar garð og varpaði spurningu til „hetja tjáningarfrelsisins“ eða „miðaldra manna innan bókmenntastéttarinnar“.

Sjá einnig: Edda fær ógeðfelldar hótanir: „Þarf ég að fá neyðarhnapp?

Jónas sagði augljóst að verið væri að þagga niður í Eddu og spurði hvers vegna ekki væri gripið til varna fyrir hana líkt og hjá breska rithöfundinum JK Rowling. Þar vísaði hann í umræðu sem hófst með færslu Einars Kárasonar fyrir skömmu og vakti upp mikla reiði.

„Nú er Edda Falak að fá morðhótanir og hótanir um ógeðslegt ofbeldi af ýmsu tagi. Að segja að það sé verið að reyna að þagga niður í henni er vægt til orða tekið. Hvar eru þessar hetjur tjáningarfrelsisins sem hata þöggun mest af öllu, þessir miðaldra menn innan bókmenntastéttarinnar sem stökkva til og fordæma öfgafull viðbrögð við skoðunum JK Rowling, og verja rétt hennar til að tjá sig (þó að þeir segist ekki endilega sammála málstaðnum)?“

Jónas spyr hvernig standi eiginlega á því að „hetjur tjáningarfrelsisins“ taki aldrei upp hanskann fyrir Eddu, og veltir fyrir sér hvort þeir séu í raun ekki að velta fyrir sér tjáningarfrelsinu.

„Ef þetta snýst um prinsipp, hvernig stendur á því að maður sér þessa menn ALDREI taka upp hanskann fyrir einhvern eins og Eddu Falak, sem situr undir margfalt meiri þöggunartilburðum en nokkuð "slaufunarfórnarlamb"? Getur verið að ást þeirra á tjáningarfrelsinu snúist um eitthvað allt annað en tjáningarfrelsið?“

Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson svaraði færslu Jónasar. Hann lýtur svo á að um sé að ræða mjög ólík mál. Hann segist ekki hafa orðið var við það að hópar skipuleggi herferð sem snúist um að skerða tjáningarfrelsi Eddu, þó að stakir einstaklingar geri það vissulega, og segir að það beri einnig að fordæma.

„Að vilja verja réttinn til að dreifa nafnlausum (en þó vel persónugreinanlegum) meiðyrðum og sögum um mann og annan einhliða eða réttinn til að halda þeirri skoðun á loft að kynin séu tvö? Já, þetta er auðvitað algjört amen. Eða ekki. Ég hef ekki orðið var við skipulagt hópefli á netinu í þá átt að vilja skerða tjáningarfrelsi Eddu. Að einhverjir netapar snappi telst ekki slíkt og og ber auðvitað að fordæma. En svo það sé sagt þá er fátt líkt með þessum málum.“ sagði í færslu Jakobs.