Sá reynslumikli ritstjóri og þjóðmálarýnir sem Jónas Kristjánsson er geldur varhug við því að rýra hlut Ríkisútvarspins á fjölmiðlamarkaði á sama tíma og einkareknir miðlar þrengi að rannsóknarblaðamennsku.
\"Hugsanlega þurfa Íslendingar ekki ríkisútvarp, þótt aðrar þjóðir Vestur-Evrópu telji sig þurfa ríkisútvarp,\" skrifar hann á jonas.is í dag og bætir við: \"Hugsanlega má ekki reka það með tapi, þótt aðrar þjóðir Vestur-Evrópu telji sig mega það. Hugsanlega er hægt að nota áróður, sem einn teboðskarl semur fyrir annan teboðskarl sem eins konar vísindi teboðsins.\"
En Jónas er hugsi vegna stöðunnar á fjölmiðlamarkaði: \"... þannig standa mál, að einkarekstur fjölmiðla er með allt niðrum sig. Reynir að afskaffa rannsóknablaðamennsku og losa sig við reynslubolta. Er meira eða minna kominn í hendur valdafíkinna sérhagsmuna. Við slíkar aðstæður skulum við laga Ríkisútvarpið, en fresta því um óákveðinn tíma að gæla við óra teboðsins.\"