Æsku – og athafnasaga Sveins R. Eyjólfssonar blaðaútgefanda er nú komin út, skráð af Silju Aðalsteindóttur undir titilinum Allt kann sá er bíða kann.
Sveinn og Jónas Kristjánsson voru nánustu samstarfsmenn í 40 ár, Jónas sem ritstjóri Dagblaðsins og svo DV sem þeir Sveinn stofnuðu með sameiningu við Vísi. Sveinn segir í viðtali á Hringbraut að sýn þeirra Jónasar hafi verið sú sama og mjög eindregin um að búa til fjölmiðil sem lyti engum pólitískum afskiptum og væri frjálsari undan þeim en flokksblöð þess tíma. Hins vegar eru Sveinn og Jónas afar ólíkir menn. Sveinn segir í viðtali á Hringbraut og glottir við: „En Jónas fór í taugarnar á mér á hverjum degi“, enda voru þeir algerlega á öndverðu meiði í stjórnmálum.
Í þáttinn Sögustund með Sigmundi Erni og Lindu Blöndal sest Sveinn niður í spjall ásamt söguritara sínum, Silju Aðalsteindóttur og fyrrverandi fréttastjóra DV, áður á Dagblaðinu, Jónasi Haraldssyni.
Þrímenningarnir rifja upp þá byltingarkenndu tíma þegar DV varð til nóvember 1981 en Sveinn reisti Vísi úr rústum og stofnaði Dgablaðið þegar þeir Jónas yfirgáfu Vísi með hvelli og gerði það að stórveldi, síðan DV, netmiðilinn visir.is og Fréttablaðið. Jónas Haraldsson tók þáttí þessum sögulegu tímum og Silja hafði séð um menningarumfjöllunina í DV, svo eitthvað sé nefnt.