Sá eiturbeitti þjóðmálarýnir sem Jónas Kristjánsson er, kveðst ekki frá því að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sé búinn að missa það, eins og hann kemst að orði í nýjustu færslu sinni á jonas.is.
Þessi einn reynslumesti ritstjóri Íslendinga skrifar á sína vísu: \"Bjarni Benediktsson er að missa það. Orðinn þreyttur og rúnum ristur í framan í sjónvarpinu. Eitthvað er það, sem hann ræður ekki við,\" skrifar Jónas og bætir við: \"Staðfestist, þegar hann tók stóra feilsporið,\" og vitnar svo í Bjarna sjálfan sem sagði svo: \"Það er líka til fólk sem að er í fullu starfi, vaknar snemma á morgnanna og vinnur allan daginn við að hafa í sig og á og sitt fólk. Það hefur ekki meira á milli handanna en þeir sem treysta á bæturnar.“
Jónasi finnst Bjarni hafa opinberað sig með þessum orðum: \"Afsakar kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja með því, að fleiri eigi bágt, það er að segja láglaunafólk,\" skrifar Jónas og segir að Bjarni viðurkenni loksins með þesum orðum sínum að láglaunafólki sé þrælað út fyrir skítakaup: \"Líklega er Bjarni Ben að bila að innan eins og Ásmundur Friðriksson.\" skrifar Jónas í dag.