Í Dömuhorninu, sem verður á dagskrá Hringbrautar í kvöld, verður kíkt í skápinn hjá séra Jónu Hrönn Bolladóttur í Vídalínskirkju, en hún er vitaskuld í starfi sem krefst þess að hafa stílinn í lagi.
Jóna Hrönn á fagran bleikan kjól sem stíllisti söngunnnar heimsfrægu Adelle vildi kaupa en Jóna Hrönn fékk hann. Hún svarar spurningunni, hvað er að vera dama? Er það spurning um að vera ungur og grannur eða snýst það um eitthvað allt annað?
Einnig verður kíkt á töskur í Sigurboganum við Laugaveg. Það er ekki sama hvernig töskur eru valdar við sparidress: \"Það er of algengt að íslenskar konur nota risastóru töskuna sína við öll tækifæri, t.d. við sparikjóllinn í leikhúsi\" segir Guðbjörg Hjálmarsdóttir í þættinum.
Dömuhornið er á dagskrá klukkan 20:15 í kvöld, strax á eftir Herrahorninu - og endursýnt strax klukkan 22:15.