Jón vill rannsókn á ummælum birgittu

Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill rannsókn á ummælum Birgittu Jónsdóttur þingmanns Pírata.

Þetta kom fram á Alþingi í morgun er Jón flutti ræðu undir liðnum Um fundarstjórn.

Jón vísaði til ummæla Birgittu sem Hringbraut fjallaði um í morgun þar sem Birgitta segir að hún hafi nánast þurft að leita sér áfallahjálpar eftir að hafa verið sessunautur Jóns á síðasta þingi vegna tuddaskapar og dónaskapar Jóns.

Jón segir þetta alvarlegar athugasemdir, engar kvartanir hafi honum borist frá forsætisnefnd og forseta Alþingis. Jón vill að ummæli Birgittu verði skoðuð af hálfu þingsins, rannsökuð.

Einar Kr. forseti Alþingis sagði að sér væri ekki kunnugt um þessi ummæli en þau yrðu skoðuð.

Birgitta svaraði að hún hefði kvartað við skrifstofustjóra Alþingis, reynt að fá flutning á síðasta þingi frá Jóni en enginn þingmaður hefði viljað skipta við hana.

Katrín Jakobsdóttir VG gerði athugasemd við að Jón færi fram með þessu, nær væri ef hann hefði nýtt tíma sinn til að biðjast afsökunar á dylgjum sínum gagnvart Björk Guðmundsdóttur.

„Þetta er undarlegt, herra forseti,“ sagði Katrín Jakobsdóttir.

Jón benti þá á að Björk hefði talað um formenn stjórnarflokkanna sem sveitalubba. Hann sæi ekki alvarleikann í ummælum sínum um Björk. Ef ekki megi svara fólki sem talar niður til ráðherra sé það einkennilegt.