Jón Við­ar gagn­rýn­ir frétt­a­flutn­ing RÚV um frönsk­u for­set­a­kosn­ing­arn­ar

Seinni um­ferð frönsku for­seta­kosninganna fór fram í kvöld og endaði með því að Emmanuel Macron for­seti var endur­kjörinn. Eins og gefur að skilja hafa ís­lenskir miðlar fjallað tölu­vert um kosningarnar en leik­listar­gagn­rýnandinn Jón Viðar Jóns­son er síður en svo sáttur við um­fjöllun Ríkis­sjón­varpsins.

Jóni finnst það nefni­lega frekar hall­æris­legt af RÚV að senda frétta­mann út til Frakk­lands sem talar ekki frönsku. Á Face­book síðu sinni skrifar hann:

„Frétta­stofa Ríkis­út­varpsins sendir mann til Parísar að fylgjast með for­seta­kosningunum. Það er í sjálfu sér á­gætt - en af hverju ekki að senda ein­hvern sem talar frönsku; það er frekar hall­æris­legt að hlusta á franska borgara reyna að tjá sig á ensku, máli sem þeir hafa - eðli­lega - fæstir gott vald á? Og ef Frétta­stofan hefur engum frönsku­manni á að skipa, hvernig væri þá að bæta úr því?“

Hvað segja les­endur, ætti RÚV að ráða til sín frétta­menn með betri tungu­mála­kunn­áttu?