„Hver vill kaupa sendiherra stöðu? Það er þá í lagi að monta sig af því að selja stöðu sendiherra fyrir greiða. Hjúkk!“
Þannig byrjar Facebook færsla Jón Þórs Ólafssonar, þingmanns Pírata, vegna niðurstöðu forsætisnefndar um svokallað Klaustursmál. Forsætisnefnd Alþingis féllst fyrr í dag á mat siðanefndar Alþingis að Bergþór Ólafsson og Gunnar Bragi Sveinsson, þingmenn Miðflokksins, hefðu brotið siðareglur með ummælum sínum á klaustri þann 20. nóvember.
Á upptökunni sem tekin var upp á Klausturbar þetta umrædda kvöldi má heyra þingmann Miðflokksins, Gunnar Braga Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, greina frá af hverju hann skipaði Árna Þór Sigurðsson fyrrverandi þingmann VG og Geir H. Haarde sem sendiherra. Skipaði hann Árna Þór til að draga athyglina frá þeirri ákvörðun að skipa Geir sendiherra í Bandaríkjunum. Árni Þór var skipaður í Finnlandi og situr þar enn. Í kjölfarið taldi Gunnar Bragi sig eiga inni greiða hjá Sjálfstæðisflokknum, að hans biði svipuð staða síðar. Ekkert kom fram í niðurstöðu siðarnefndar um þetta samtal sem átti sér stað á Klaustur bar.
Jón Þór spyr svo að lokum.
„Annað hvort þýðir Klaustursamtal SDG og GBS að þeir:
1. Lugu upp á tvo ráðherra um lögbrot, eða
2. Þeir uppljóstruðu um glæpsamlega spillingu þeirra og ráðherranna,
3. eða hvað?“
1. Lugu upp á tvo ráðherra um lögbrot, eða
2. Þeir uppljóstruðu um glæpsamlega spillingu þeirra og ráðherranna,
3. eða hvað?“