Jón þór pírati með verstu mætinguna

Píratinn Jón Þór Ólafsson er sá alþingismanna þjóðarinnar sem mætir verst á nefndafundi Alþingis. Hann situr meðal annars í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins og hafði mætt á 2 fundi af 30 það sem af er kjörtímabilinu.


Morgunblaðið birtir nákvæman lista yfir mætingu þingmanna á nefndafundi í blaðinu í dag en þar kemur í ljós að mætingin er allt frá því að vera minni en 10% og upp í það að vera 100%. Þingmennirnir Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki og Bjarkey Gunnarsdóttir Vinstrihreyfingunnni grænu framboði eru duglegeust að sækja nefndafundi samkvæmt samantekt blaðsins.


Nefndafundir eru meginstarf kjörinna fulltrúa á Alþingi Íslendinga, en þar eru þingsályktanir og frumvörp ígrunduð, metin og borin undir hagsmunaaðila með mögulega lagasetningu, innleiðingu reglna eða breytingar á þeim í huga. Nefndarstarfið er tímafrekt og krefst einatt mikils yfirlesturs en öðru fremur þaulsetu á fundum sem jafnan vara helftina úr hverjum vinnudegi þingsmanns.


Af öðrum þingmönnum sem mæta slælega á fundi Alþingis og fram kemur í greiningu Morgunblaðsins í dag má nefna þingmennina Ásmund Einar Daðason Framsóknarflokki og Össur Skarphéðinsson Samfylkingunni.


Píratar hafa brugðist við fréttum af slælegri fundasókn Jóns Þórs með þeim rökum að hann þurfi að sitja fundi þriggja þingnefnda á sama tíma á mánudags- og miðvikudagsmorgnum. Þá þurfi Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata að vera á fundum á tveimur stöðum í einu á þriðjudögum og fimmtudögum. Helgi Hrafn Gunnarsson Pírata geti hins vegar mætt á sína nefndarfundi án þess að til árekstra komi. Þá sé því augljóslega erfitt fyrir þriggja manna þingflokk að skipta sér á milli margra funda á hverjum degi.