Jón: þarf ekki að biðja björk afsökunar

Sá þingmaður sem átt hefur vikuna með húð og jafnvel hári, Jón Gunnarsson svarar Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi og umhverfisverndarsinna fullum hálsi á fésbók sinni í dag og segir hann fara með fleipur, rangt mál og gera sér upp skoðanir. 

Jón rifjar fyrst upp uppnefni Bjarkar, vinkonu Andra Snæs: \"Andri Snær fer mikinn vegna gagnrýni minnar á ummæli Bjarkar Guðmundsdóttur um að forsætis- og fjármálaráðherra væru sveitalubbar sem vildu eyða hálendi Íslands. Hún hefur áður kallað ríkisstjórnina í viðtali við The Guardian geðveika og sagt ranglega að Íslenskir stjórnmálamenn hafi verið sendir í fangelsi eftir hrunið. Það er engu líkara en að allt verði vitlaust ef manni dettur í hug að svara slíkum ummælum,\" skrifar Jón nokkuð hugsi.

Hann vill að Andri Snær haldi sig við staðreyndir, hafi hann að minnsta kosti í réttu kjördæmi: \"Þá á álver í Helguvík að vera gæluverkefni mitt en frá því ég tók við sem formaður atvinnuveganefndar þingsins hef ég ekki haldið svo mikið sem einn fund um álver í Helguvík. Slíkur er nú áhuginn. Ég hef einnig talið umræðu um álver norðan heiða fullkomlega óraunhæfa hugmynd og talað gegn henni.\"

Hann svarar eftirfarandi orðum Andra Snæs, sem voru í þessa veru: \"Náttúruvendarsinnar hafa þurft að gerast talsmenn fyrir venjulegan kísildalsfrumkvöðlakapítalisma\" og Jón tekur við: \"Ég hef tekið þátt í því sem þingmaður ríkisstjórnarflokkana að auka framlög til vísinda- og nýsköpunarsjóða þannig að þau hafa aldrei verið hærri en nú. Einnig samþykktum við á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að sérstaklega skyldi hugað að þörfum lítilla sprotafyrirtækja sem almennt eiga erfitt með að fá fjármagn úr þessum samkeppnissjóðum. Áhugi minn á uppbyggingu á þessu sviði er mikill eins og almennt á við um uppbyggingu í atvinnlífi og verðmætasköpun þjóðarinnar,\" skrifar þingmaðurinn, næsta yfirvegaður.

Og hann kveðst alveg sáttur við listfengi Bjarkar: \"Ég er mjög sáttur við kraftinn og sköpunargleðina sem býr í fólkinu í landinu og ekki geri ég lítið úr þeirri kynningu sem Björk Guðmundsdóttir hefur fært okkur. En þeir sem eiga að mínu mati mestan heiður að uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu eru Alfreð Elíassson og aðrir frumkvöðlar Íslenskra flugfélaga. Að gera Ísland að þeirri miðstöð í millilandaflugi sem þeir gerðu hefur haft meiri áhrif en nokkuð annað í að koma landinu á kortið. Skynsamleg nýting endurnýjanlegra orkugjafa okkar er ein af grunnforsendum þess að byggja hér upp öflugt velferðakerfi sem m.a. getur sómasamlega haldið utan um þá sem að minna mega sín í okkar samfélagi. Með öflugu dreifikerfi raforku skapar það tækifæri til byggðafestu og leggur grunn að því að ungt fólk með hina ýmsu menntun geti skapað sér framtíð til búsetu jafnt á landsbyggðinni sem og á höfuðborgarsvæðinu. Að líkja því stöðugt við einhverja stóriðjustefnu sem sett er fram í neikvæðri merkingu er ekki gert nema til að slá ryki í augun á fólki. Ég tel mig ekki þurfa að biðja Björk Guðmundsdóttur afsökunar á því sem ég lagði upp með í stuttum pisli mínum. Fólk, hvort sem það er þekkt eða ekki, sem setur fram gagnrýni með gífuryrðum hlýtur að gera ráð fyrir viðbrögðum.\"