\"Stjórnendur Borgunar kunna ekki að skammast sín,\" skrifar prófessor Jón Steinsson, hagfræðingur við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum sem fylgst hefur gjörla með þróun Borgunarmálsins síðustu daga.
Þar tekur hver vendinginn við af annarri, svo sem sjá má af fréttum gærkvöldsins sem sjá má hér á hringbraut.is, eða af fyrri skrifum Jóns um málið sem vitnað hefur verið til hér á þessum síðum og vakið hafa mikla athygli.
Nú í dag beinir fræðimaðurinn Jón orðum sínum að Borgunarmönnum: \"Skömm þeirra virðist vera mikil. Svo virðist sem þeir hafi séð tækifæri til þess að hafa mikil verðmæti af almenningi og tekið það,\" skrifar hann af vanþóknun.
Hann kveðst ekki vera dómbær á það hvort það sem þessir bissnessherrar gerðu sé ólöglegt: \"En það lítur alla veg út fyrir að vera siðlaust. Eða var það ekki hlutverk þeirra sem stjórnenda Borgunar að upplýsa eiganda Borgunar (þ.e. Landsbankann) sem þeir voru að vinna fyrir um raunverulegt verðmæti fyrirtækisins,\" spyr Jón í tilskrifi dagsins.
\"En hvernig gat það samrýmst því að þeir sjálfir væru að semja við Landsbankann um að kaupa hlutinn,\" spyr hann enn: \"Á ensku kallast þetta conflict of interest. Nú bera þeir fyrir sig að hafa selt helming af því sem þeir keyptu áður en tilkynnt var um söluna á VISA Europe. Fróðlegt væri að vita á hvaða verði sú sala fór fram,\" skrifar hagfræðiprófessorinn sem lét Landsbankastjóra heyra það um helgina og Borgunarmenn ekki síður í dag.