Jón steindór: „snýst um að konur ráði sér sjálfar“

Jón Stein­dór Valdimars­son, þing­maður Við­reisnar, segir frumvarp um þungunarrof snúast um yfirráða- og sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama. Fréttablaðið greinir frá.

„Það er grund­vallar­at­riði í málinu og sá sjónar­hóll sem við eigum að horfa á málið út frá,“ sagði Jón Steindór í umræðum um störf þingsins í morgun. „Í mínum huga snýst málið ekki um vikutalningu. Það snýst um að konur ráði sér sjálfar, hver og ein á eigin for­sendum, og það geti aldrei verið þannig að opin­berir aðilar eða fag­aðilar eigi að segja konum hvað þeim er fyrir bestu og hvaða á­kvarðanir þær eigi að taka.“

Meiri­hluti vel­ferðar­nefndar hefur lagt til að frumvarpið, sem kveður á um að konur geti rofið þungun allt til loka 22. viku meðgöngu, verði samþykkt.

Jón Steindór telur mikil­vægt að konum sé veitt ráð­gjöf og þeim gefnar upp­lýsingar ef eftir því er leitað en ítrekar að á­kvörðunin sé á endanum konunnar sjálfrar. Þá sagði hann aukið frelsi í þessum málum ekki til þess fallið að fjölga þungunar­rofum. „Þvert á móti bendir margt til þess að þungunar­rofum fækki.“

Einnig hvatti Jón Steindór þingmenn til að gæta hófs í orðavali sínu í umræðu um frumvarpið, en hart var tekist á um það í umræðum í gær. „Málið verð­skuldar vandaða um­fjöllun og hóf­stillta um­ræðu og ég hvet hátt­virta þingmenn sem taka þátt í um­ræðunni til að gæta hófs í orða­vali sínu um þau mál.“