Jón Steinar vill að dómaraefni verði yfirheyrð

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, vill að þingnefnd yfirheyri dómaraefni eftir tilnefningu frá ráðherra. Þetta sagði hann í nýjasta þætti hlaðvarpsins Það skiptir máli, sem hlusta má á hér.

Yfirheyrslur á vegum þingnefnda tíðkast í Bandaríkjunum. Margir muna eftir yfirheyrslum á Brett Kavanaugh eftir að hann var skipaður í Hæstarétt Bandaríkjanna af forsetanum þáverandi Donald Trump. Kavanaugh var spurður spjörunum úr, meðal þeirra sem báru vitni var meint fórnarlamb hans. Óvíst er hvort Jón Steinar geri ráð fyrir að íslenskir þingmenn fari mýkri höndum um dómaraefni.

Hann segir nauðsynlegt að breyta ýms­um regl­um um Hæsta­rétt og skipun dómara. Dóm­nefnd setji ein­hvern einn eða tvo um­sækj­end­ur í efsta sæti og ráðherra sé skylt að skipa þá. „Ráðherra á síðan að velja dóm­ara og loks á Alþingi að staðfesta það val. Það eig­um við að gera með þeim hætti, eins og þekk­ist t.d. í Banda­ríkj­un­um, að sá sem ráðherra vill skipa, mæt­ir fyr­ir þing­nefnd og svar­ar þar spurn­ing­um þing­manna um af­stöðu sína til ým­issa hluta í meðferð rétt­ar­ins, til dæmis hvort heim­ilt sé að víkja frá stjórn­ar­skrá eða setja ný lög, og það á að leyfa fjöl­miðlum að fylgj­ast með þess­um yf­ir­heyrsl­um og sjón­varpa frá þeim,“ segir Jón Steinar.

„Þetta mun auka gagn­sæi í skip­un dóm­ara. Nú veit al­menn­ing­ur lítið sem ekk­ert um þá dóm­ara sem eru skipaðir; þeir skríða bara inn í æðsta dóm­stól þjóðar­inn­ar. Dóm­ari sem hef­ur þurft að svara spurn­ing­um um grund­vall­ar­atriði áður en hann tek­ur við embætti er miklu lík­legri til að fara eft­ir því sem hann sagði við yf­ir­heyrsl­una en sá sem ekk­ert hef­ur þurft að segja.“